Wednesday, February 6, 2008

Sleep


Líðan mín hverju sinni stjórnast að mestum hluta af magni og gæðum þess svefns sem ég fékk nóttina áður. Ef ég sef vel líður mér vel en ef ég sef illa líður mér illa:/ Í fyrrinótt svaf ég alveg dúndurvel og leið líka alveg dúndurvel í gær. Í nótt svaf ég aftur á móti ekki svo vel og líður í kjölfarið ekkert alltof vel heldur..

Svona hef ég alltaf verið en þetta orsakasamhengi mitt hefur samt batnað verulega að undanförnu. Núna er ég minna handónýt eftir slæman svefn en áður, sem er frábært. Þessu þakka ég Siggú vinkonu því hún gaf mér dáleiðsludiskinn Betri svefn í jólagjöf. Í kjölfarið næ ég alltaf einhverjum djúpsvefni þó svo að ég vakni stundum í kjölfarið á honum og það er mið nótt..

Thanks honey boney:)

2 comments:

Anonymous said...

Hey babe, verði þér að góðu ,-)
Frábærar myndir frá ferðalaginu... Rosalega fallegt þarna. Ég var búin að gleyma hvernig sumar og sól leit út :-)

Svava said...

Thanks babe:) já I totally wish I was still there..