Sunday, February 24, 2008

Tíhí

Íbúðin mín er komin á sölu:)

Hérna er auglýsingin

Ég er á þvílíkum bömmer yfir að hafa ekki farið í þrítugsafmælið hjá Ingu á föstudaginn. Ég hefði svo verið til í að hitta Hvassóstelpurnar, sérstaklega Völu. En, ég hefði ekki fílað að fara þreytt og sjúskuð. Þannig er það nú bara, I hope they appriciate that you get tired eins og stones-erarnir segja.

Annars hefur mér alltaf fundist vera einum of margir dagar í vinnuvikunni. Það er markmið mitt í lífinu að þurfa ekki að vinna mikið. Mér finnst sérstaklega eftirsóknarvert að vinna ekki á föstudögum. Þá getur maður farið út á föstudagskvöldum ef svo ber við og gert ýmis konar útréttingar á föstudögum í staðinn fyrir að helgin fari í það. Helgin getur þá verið eytt í unaðslegan quality time með fjölskyldu og vinum. Af hverju er fólk (stjórnmálamenn) ekki að fatta þetta?? Af hverju þarf vinnan að taka svona þrúgandi mikinn tíma af ævinni?? Hún mamma (sem er náttúrulega snillingur) vinnur ekki á föstudögum. Hún skilur. Vá, that is the dream.

Annars var voða gaman í gærkvöldi. Surprise afmælisveisla fyrir Önnu Láru vinkonu:) Ég sá um að plata hana og koma henni á staðinn sem var Caruso þar sem um 14 af vinum hennar og kunningjum voru samankomnir til að fagna þrítugsafmælinu með henni. Ég verð að viðurkenna að ég oggu poggu stressuð, sérstaklega þegar við vorum komnar á Caruso en partýið okkar var á þriðju hæðinni. Þá fattaði ég að vissi ekkert hvað ég átti að segja við þjónana sem áttu að vísa okkur í óvænta partýið. Brá dáldið þegar þjónninn spurði mig hvað borðið væri fyrir marga beint fyrir framan Önnu Láru auðvitað.. svo fór rafmagnið akkúrat af.. En, þetta reddaðist allt saman:)

Jæja, later peeps.

2 comments:

Anonymous said...

hæ hæ

ég kíki nú hér inn reglulega til að fylgjast með ;) hefði verið gaman að hittast hjá ingu en það kemur teiti eftir þetta teiti!

Vala

Svava said...

Vala!! En hvað mér þykir vænt um þetta comment:) já, það hlýtur að koma teiti eftir þetta teiti, annars erum við öll í afar slæmum málum. Ég frétti frá Ingu að ég hefði misst af þvílíku djammi, svo hitti ég líka Sylvíu í World Class í gær (hvar annars staðar..) sem sagði það sama. Ég er allaveganna game, ég tala nú ekki um ef það er hittingur á laugardagskvöldi!

Takk fyrir þetta Vala mín