Monday, July 28, 2008

Arnaldur Indriðason


Er dáldið svekkt yfir honum Arnaldi.

Venjulega nýt ég þess í botn að lesa bækurnar hans. Elskaði Harðskafa, Grafarþögn og Kleifarvatn..

.. En núna er ég að lesa Konungsbók og man o man.. Eitthvað vantar nú fúttið í þá bók.. Bókin fjallar hingað til um fornbókmenntir og eldgömul íslensk handrit og ég skil vel upp að vissu marki hversu heillandi þessir hlutir eru EN það er eitthvað fundamentally ósexy við þetta sem efnivið í heila bók.

En það er náttúrulega bara mín skoðun.

Hérna kemur sér einstaklega illa að vera þrjósk því ég vil ekki "gefast upp" á bókinni.. Ég vona svo sannarlega að eitthvað fútt fari að koma í hana (komin á bls. 40 og eitthvað..)

Am hanging in there..

2 comments:

Tinnsi said...

ég var svaka hrifin af Konungsbók. Í fyrsta lagi var hún vel skrifuð. Enginn byrjendabragur. Síðan fannst mér skemmtilegt að hún gerist á öðrum tíma, og í Danmörku, kannski því ég bjó þar og fékk smá nasaþef af KU.

Svava said...

Já, veistu, ég er komin lengra í bókinni núna og hún er bara öll að koma til:)