Monday, November 17, 2008

Karitas án titils eftir Kristínu Marju Baldursdóttur


Ég er að lesa yndislega bók.

Af einhverjum ástæðum fíla ég vel bækur sem segja frá atburðum sem gerðust í gamla daga. Karitas bókin gerist á Íslandi (hingað til á Vestfjörðum og Akureyri og siglingarleiðinni þar á milli) á árunum 1915 - 1917.

Það kemur alltaf jafn mikið á óvart hversu miklar framfarir hafa orðið á einni mannsævi. Fyrir ekki einu sinni 100 árum síðan var fólk ennþá á sauðskinnsskóm (leðurskórnir voru reyndar að koma inn og þóttu mikið móðins) og var blautt í fæturnar fyrir vikið. Aðaláhyggjuefnið veturinn 1917 var að hita húsin upp því ekki voru til nóg kol. Vegna þess að það var ískalt og mikið frost veiktust margir og það var líka matarskortur.

En sagan er afar hugljúf og segir frá einni alþýðufjölskyldu. Ég er alveg komin inn í söguna og sé hana vel fyrir mér. Af einhverjum ástæðum elska ég þessa bók og fór meira að segja að gráta í gær þegar Karitas var að kveðja fjölskyldu sína af því að hún er fara til náms í Kaupmannahöfn, nánar tiltekið Konunglegu listaakademíuna. Systir hennar Halldóra er fárveik heima.

Ok. Þegar ég græt yfir bók þá er bókin góð. Líka þegar ég hlæ yfir bók.

4 comments:

Anonymous said...

Hae Svava! Thad er svo gaman ad lesa gódar baekur. Ég er líka ad lesa bók sem ég graet yfir en thad er ekki vegna thess ad hún er gód heldur er hún svo leidinleg. En hvad um thad. Ertu bara aldrei á msn-inu núna? Thad er svo gedveikt langt sídan vid spjölludum saman sídast, mér finnst thetta bara ekki ganga lengur. Knús frá Sunnevu í Svíthjód.

Svava said...

Blessuð! Ég veit! Mér var einmitt hugsað svo til um daginn. Já, ég var ekki alveg að finna mig í þessu msn-i EN ég er komin á gmail og þar er hægt að tala saman á msn-i sem mér finnst voða sniðugt. Ertu til í elsku Sunneva að fá þér svona gmail svo við getum talað saman þannig? Mitt gmail er svava.olafsdottir@gmail.com
P.s. ef það gengur ekki þá verðum við að ákveða annað samskiptaform! P.p.s. ég er alltaf á leiðinni að tékka á Svíþjóð;)

Svava said...

Heyrðu, ég man núna líka hvað málið var. Ég var með msn en svo crash-aði tölvan og allt datt út. Svo þegar ég ætlaði að setja msn dæmið aftur upp þá vantaði mig msn adressuna þína (og man varla mína).

Anonymous said...

Ókei, ég skil. Ég aetla ad tékka á thessu g-mail daemi eins fljótt og mögulegt er.