... að ég hlakka til að verða eldri.
Þegar ég verð eldri og börnin verða um tvítug eða eitthvað ... ÞÁ GET ÉG BARA GERT ÞAÐ SEM ÉG VIL!!!!!
Ooohhh, ég hlakka svo til. Þá get ég farið í nokkra daga göngur um fjöll og fyrnindi út á landi (t.d. Hornstrandir og hjá Ásbyrgi fyrir norðan, já eða bara að ég get farið til útlanda í friði:)
Je, dúdda mía, hvað þetta verður yndislegt. Þá þarf maður aldrei að vera bundinn af börnunum framar og ekki þurfa að hafa áhyggjur af því að vera ekki með barnapíu..
Ég hlakka bara ógeðslega mikið til!!!!!!!!!!!!!
Síðustu páska fékk ég þennan yndislega kaldhæðna málshátt: Eitt barn er sem ekki neitt en tvö sem tíu.
I rest my case for now og ætla ekki að eignast fleiri börn. Kem þó eilíflega til með að sakna þess að hafa ekki eignast stelpu. Það er bömmer.
Ég sakna þess líka af hafa ekki átt systur. Það er allt öðruvísi að eiga bræður en systur. Og það er allt öðruvísi að eiga stráka en stelpur.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Þegar ég var sjö ára passaði ég Orra úti á róluvelli í klukkutíma á dag. Og fékk fyrir það hundrað krónur, sem var bréfpeningur, á mánuði!
hehe, vá, hundrað krónur á mánuði!! En gaman að heyra þetta:) Ég treysti samt Óla ekki alveg fyllilega til að passa Stefán úti á róló. Held að hann myndi aldrei meika heilan klukkutíma! Hann er svo æstur að fara út að leika sjálfur.. Æ, okkur vantar sárlega barnapíu!
Post a Comment