Monday, April 25, 2016

Bókatíðindi

Las þessa hérna um daginn, um það leyti sem ég fór til Bali.


fyrst fannst mér hún skrýtin og undarleg og ekkert spes. Síðan varð ég fyrir smá vitrun og tengdi við það sem verið var að fjalla um í bókinni. Bókin fjallar sem sagt um mann, strák sem kynnist stelpu í búsáhaldabyltingunni, í mótmælunum. Bókin byrjar á því að það er bankað upp á hjá honum seint að kvöldi og tveir kunningjar láta hann fá bréf frá Söru, stelpunni. Hann sem sagt náði að beita hana ofbeldi í sambandinu þeirra og hún vill gera honum grein fyrir því og setur honum úrslitakosti; að viðurkenna ofbeldið og leita sér hjálpar og láta hana vera og ekki vera á ákveðnum stöðum og svo framvegis.

Fyst áttar lesandinn sig ekki alveg á hvaða ofbeldi þetta var eiginlega en svo kemur í ljós alla bókina hvernig hann lét við hana. Varð tilfinningalega lokaður þó þau væru saman og var svo nákvæmlega sama um tilfinningar hennar að það meiddi hana. Svo var líka eitthvað líkamlegt kynferðislegt ofbeldi, eða þannig. Allavegana, bókin fjallar um hvað er ofbeldi og hvað er ekki ofbeldi; hvort maður geti meitt aðra manneskju með tilfinningum einum saman.

Allavegana, ég tengdi við þetta því ég hef kynnst svona karlmönnum. Ætli þeir flokkist ekki sem hættulegir hjá þeim sem fara á SLA fundi (Sex and Love addiction.) Þeir heilla mann upp úr skónum og svo er maður ekki til hjá þeim þangað til maður er til en svo er þeim alveg sama. Svona siðblindingjar.Stórhættulegir menn fyrir konur.

Allavegana, ágæt bók. Ekkert æði. En hún situr smá í mér. Frábært að karlmaður skrifi þetta því það væri svo týpískt að beiskur kvenmaður hefði skrifað um þetta viðfangsefni.

Jú, jú.


No comments: