Las viðtal við eina farsælustu knattspyrnukonu landsins, Margréti Láru Viðarsdóttur, þar sem hún talaði um markmiðasetningu. Hún hefur markmið fyrir hvert ár og svo er hún líka með draumamarkmið. Og hún hefur alveg náð þeim.
Svona markmiðasetning finnst mér í alvörunni spennandi. Það kveikir í mér.
Núna er ég komin með draumamarkmið. Vegna aðstæðna minna í lífinu (ég er jú með 6 manna nærfjölskyldu þar sem við erum með fjögur börn á aldrinum 3-14 ára) þá virðist þetta vera svona útópíumarkmið en það er jú allt einhvern tíma hægt þó að það gerist ekki strax.
Það sem mig dreymir um að geta gert er að fara aftur til Asíu í yogakennaranám. Annað hvort til Bali eða Tælands.
Þegar ég fór í þetta yogastúdíó í Ubud í Bali leið mér eins og ég væri komin heim. Mig langaði ekki til að fara og ég vildi bara vera þarna. Ég er líka með þannig líkama að ef ég geri ekki almennilegt yoga að minnsta kosti einu sinni í viku þá fer allt í fokk.
Dream on baby. Dream on.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment