Monday, December 19, 2016

ho ho ho!

Jæja, halló:) Langt síðan ég hef verið hérna inni.....

Lífið gengur sinn vanagang og örvæntingafulla húsmóðirin okkar allra er næstum því búin að græja allt fyrir jólin. Á bara jólagjöfina til Óla eftir og bara veit ekki hvað ég á að gefa honum:/

Atvinnuleysið gengur sinn vanagang. Þótt ótrúlegt megi virðast er mér ekki farið að leiðast. Ég passa að hitta alltaf allavegana eina manneskju á dag svona svo ég klikkist ekki og næ að hafa ofan af fyrir sjálfri mér hérna heima með margvíslegum verkefnum sem er gott.

Á einhvern hátt náði ég að krækja mér í einhverja pest sem ég er alveg steinhissa á af því að það er svo ólíkt mér að vera veik. Var mjög slöpp í gær en fór eftir gömlum húsráðum og súpti á ediki og blandaði matarsóda í vatnsglas sem virðist hafa jákvæð áhrif. Mér líður eins og ég þurfi einhverja góðgerla eins og magaflórann sé ekki alveg í jafnvægi...

Hélt að mér væri batnað þegar ég vaknaði í morgun en svo fór ég út í göngutúr með vinkonu og fann að mér er ekki alveg batnað:/ Ég ældi ekki eða neitt svoleiðis en mig langaði dáldið til þess.

Ég spái því að þessi anstyggilegheit verði úr sögunni á morgun. Og hana nú!

No comments: