Wednesday, December 21, 2016

Stúlka með perlueyrnalokk

Fór alla leið á Borgarbókasafnið til að finna þessa bók;

Verð að segja að ég er ánægð með hana. Hún gerist árið 1660 eða eitthvað eða árin þar í kring sem er jú alveg forvitnilegt en líka svona .... æ, maður er kannski of mikil brussa en stúlkan sem um ræðir er 17 og 18 ára gömul í bókinni og er það feimin við karlmenn að hún er alltaf með línhettuna sína og vill ekki að þeir sjái hárið sitt einu sinni!

Bókin snýst um málverk sem minnir mig óneitanlega á bókina Málverkið eftir Ólaf Jóhann Ólafsson sem var mjög góð bók. Allt snýst þetta auðvitað um erótík og perraskap á milli málarans og konuna sem verið er að mála. Allt á mjög settlegan hátt.

Jú jú. Bókin á undan þessari sem ég las var Frönsk svíta sem gerðist í seinni heimstyrjöldinni og þá var líka allt svona forpokað. Ætli ég þurfi ekki að lesa 50 shades of gray til að vega upp á móti öllum tepruskapnum. Ég held það.

Allavegana, langar að lesa nútímabókmenntir næst og bind miklar vonir við jólagjafirnar frá bræðrum mínum. Ó, hvað ég gæti óskað að allavega annar þeirra hefði fæðst sem stúlka btw.

1 comment:

Tinnsi said...

'Eg er að lesa Eyland eftir Sigríði Hagalín Björnsdóttur. Það er distópía, heimsendasaga. Ég er bara nokkuð ánægð með hana. Hún er kannski ekkert argandi meistaraverk en svolítið spennandi. Hin skáldsagan sem ég er að lesa (er loksins að lesa skáldsögur) er Corrections eftir Jonathan Franzen. Það er tvímælalaust betur skrifuð bók og svona, meira verk, en það eru engir fljúgandi kúkar í Eyland sem ég verð að segja mér finnst vera kostur.