aahh, brúðkaups undirbúningur.
Dáldið gaman bara. Núna er ég að spá í boðskortunum því að það fer að koma tími á þau. Auðvitað langar mann í eitthvað alveg æðislega elegant og lekkert en ég er eiginlega hætt við það. Nenni ekki fullkomnunaráráttu núna.
Svo ég ætla bara að gera þetta easy og simple sem er eiginlega þemað mitt fyrir þetta brúðkaup. Ekkert stress, engar sætaskipanir, engin skemmtiatriði, ekkert vesen, engin kirkja.
Og maður lifandi hvað mig langar að vera berfætt í grasinu á stóru stundinni. Sko, í brúðkaupskjólnum að sjálfsögðu.
:)
Later peeps.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Ég fór strax að googla vistvænn pappír. Sá fyrir mér einhern himneskan pappír úr laufblöðum og mosa en sá ekkert svoleiðis... Gangi þér vel Svava mín!
Post a Comment