Wednesday, August 14, 2019

Eternal bliss

Þetta sumar maður.

Ég er alsæl. Það er langt síðan ég hef átt svona gott sumar.

Það munar svo miklu hvað börnin eru orðin sjálfala. Ég er frjálsari og þar með hamingjusamari. Ákvað mjög meðvitað að hætta að búa til einhverja dagskrá eins og undanfarin ár og sleppti Húsdýragarðinum og Árbæjarsafninu og öllu svoleiðis alfarið. Er svo alsæl með að sá pakki er búinn. Sirka 17 ár í "pakkanum" er nóg.

Í kjölfarið hef ég get baðað mig í sjálfsást, almennri sjálfhverfu og hamingju. Það þarf í rauninni ekki mikið til. Bara að geta labbað út af heimilinu og látið mig hverfa í smá stund róleg og örugg því að ég er orðin róleg og örugg með börnin. Þau eru ekkert að fara að fara sér að voða.

Stefán er með síma, er ábyrgur og allt er í goody.

Veðrið er búið að vera dásamlegt, hef átt margar gæðastundir með vinkonum mínum og líður vel.

Hef verið að fara út í náttúruna í hugleiðslur og sjálfsheilun og finnst allt vera frábært.

Takk Ísland, fósturjörð.






No comments: