Áttaði mig á því upp úr kl 16 í gær þegar ég horfði á mig í speglinum með aflitað hárið (ætlaði bara að fá mér nokkrar ljósar strípur) og í nýja waist trainernum sem ég var að ná í á pósthúsið að þetta væri klárlega málið.
Held að ég sé frekar slæmt tilfelli. Fór í nýja bikini-inu í sund (líka í gær) en ekki gamla lummó sundbolnum úr Hagkaup sem ég fer alltaf í.
Veit ekki alveg hvar þetta á eftir að enda en ég er að leita að milliveginum með logandi ljósi.
Spurning um að tóna þetta aðeins niður.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment