Mér finnst voða skrýtið að það sé bara komið haust.
Mér finnst hitastigið ekki benda til þess einhvern veginn (er ekki að kvarta) og ekki alveg kominn þessi kertaljósafílingur strax. Held að ég sé öll orðin næmari fyrir árstíðaskiptum (sem og öðru.)
Guðrún Halla byrjuð í skóla auðvitað. Ég ætla að vinna í því í vikunni að hún labbi kannski ein heim úr frístundaheimilinu. Veit ekki alveg samt. Börnin mín eru kannski ekki orðin eins stór og ég held að þau séu stundum.
Ég er svo glöð með bókina sem ég fann á bókasafninu. Síðasta bók sem ég var með var bara ekki að ná mér og ég nennti bara ekki að lesa hana. Vil samt alltaf klára það sem ég byrja á og strögglaði með hana með því að framlengja skilafrestinum. Þessi sem ég er með núna heitir Friend request og náði mér strax. Kom svo í ljós að hún fjallar að einhverju leyti um E pilluna sem tröllreið öllu í næturlífinu í níunni. Svo ég tengi. Ég var einmitt í Englandi tvisvar í níunni á þessum slóðum þar sem sagan gerist og fór á rave þar þar sem blessaða pillan sveif undir, yfir og inní öllu. Nían var eitthvað. Klikkaður áratugur.
Af sjálfri mér er það að frétta að ég er með aðstöðu tvisvar í viku og er svo í vinnustaðanuddinu. Elska að vinna hjá sjálfri mér en þyrfti reyndar að þéna aðeins meira... það væri óskandi að húsmóðursstarfið væri launað. Já og móður hlutverkið..
Ætla að elska þetta haust þó ég sakni besta sumars ever. Þessir haustlitir, ha?
Namaste bitches.
1 comment:
Gleðilegt haust vinkona! Bestu kveðjur til skólastúlkunnar.
Post a Comment