Wednesday, May 20, 2020

slam dunk

Its a slam dunk.

Slegið. Selt. 

Það er svo gott þegar maður finnur loksins eitthvað gott að lesa. Bókin sem ég er að lesa núna er eins og að hitta gamlan vin.

Í 14 daga lána hillunni á bókasafninu, þessari með nýju bókunum, fann ég vin minn Jussi Adler Olsen. Þekki kauða auðvitað ekki neitt en finnst eins og ég þekki þá karaktera sem ég hef lesið um í bókunum hans; þau Carl, Assad, Rose og Gordon í deild Q í Kaupmannahafnarlögreglunni.

Lendi iðullega í því þegar ég lifi mig svona inn í bækur að ég bý til mynd af persónunum í huganum. Svo verð ég vonsvikin þegar ég sé þær á sjónvarpskjánum því að þannig sá ég þær alls ekki fyrir mér. Sá á RÚV sjónvarpsþætti um deild Q og var ekki sátt við hvernig karektarnir voru. Bara alls ekki eins og ég hafði séð þá fyrir mér. 

Þetta er dáldið eins og með Erlend í Arnaldsbókunum. Ég hafði búið til karakter í huganum en svo þegar ég sá Ingvar leikara leika hann var það alls ekki eins og ég hafði séð Erlend fyrir mér. Núna er Ingvar náttúrulega kominn í stað fígúrunnar sem var í huganum sem Erlendur. Man ekki einu sinni hvernig sú fígúra leit út hjá núna..

Allavegana, er auðvitað farin að þykja vænt um alla þessa karaktera. Rose er núna búin að sofa hjá bæði Assad og Gordon. Finnst svona lagað nauðsynlegt til að halda manni við efnið. 

Hann Jussi stendur sig allavega vel. Hann var sá eini sem kom upp á herra Google þegar ég sló inn Jussi. 

Bravo! Veisla framundan.



p.s. Var að rifja upp síðustu bækur hans. Mikið ofboðslega er þetta hæfileikaríkur höfundur!

P.p.s. Þetta er skrifað þegar bókin er meira en hálfnuð. Held ég sé orðin of viðkvæm fyrir svona grimmar bækur. Hér eru á ferð morðingjar, barnaníðingar og nauðgarar. Já og hryðjuverkamenn og mannræningar. Herre gud. 

No comments: