Las viðtal við Pál Óskar í gær og tengdi mikið.
Hann var að tala um samfélagsmiðla og hvað maður á oft óheilbrigt samband við þá. Setur t.d. inn mynd og svo fer dagurinn í að tékka á lækum..
Stend sjálfa mig líka að því að vera leita í símanum að einhverju sem ég veit ekki hvað er. Stari á hann eins og hann hafi svarið. Gríp hann og fer inn í öll öppin að leita að ... hverju?
Held að markmiðið sé að vera minna í símanum yfir höfuð.
Ég ætla að taka Pál Óskar mér til fyrirmyndar og minnka samfélagsmiðlana (aðallega Instagram) niður í aðeins vinnutengt.
Yyaaass queen!
No comments:
Post a Comment