Friday, September 3, 2021

Vottaður stimpli sjálfsvorkunnar

Pistill vikunnar er vottaður stimpli sjálfsvorkunnar. Ég er að vísa í texta Hatara bara svo það sé á hreinu. Hann segir reyndar "vottaður stimpli fyrirlitningar" en það er ekki alveg málið hjá mér. Það er líklegast Matthías Tryggvi Haraldsson sem semur textana af svona mikilli snilldargáfu. Elska þetta band. (Það rjátlaðist á mig í háskólanum að vísa alltaf í heimildir. Það er þetta með tilvísanirnar..) 

Mér finnst að við ættum öll að taka okkur saman og vorkenna örvæntingarfullu húsmóðurinni í Hlíðunum sem eitthvað misbeitti hnúa og handlegg í vinnunni með þeim afleiðingum að ég veit ekki hvort um æðaklemmur eða taugaklemmur er að ræða. Já fleirtölur og ansi löng setning.

Vinstri handleggur hefur hangið frá því í gær þannig að mig langar mest til að vera með hann í fatla. Er með marblett og bólgur í hnúanum sem si svona spratt fram bara allt í einu.

Ég var ekki í góðu ástandi í morgun í trommuhringnum mínum á Mama sem er vanalega uppáhalds stund allrar vikunnar hjá mér. Í byrjun fannst mér eins að það væri að steinlíða yfir mig. Horfði á útbungun á aumu hendinni sem mér fannst líkjast æðaflækju. Meika ekki neitt tengt blóði og æðum. Sem betur fer voru allir með augun lokuð því við vorum að stilla okkur saman þið vitið. Cacao seremónía. 

Óvissan er líka að naga mig. Get ég nuddað í næstu viku? Vil ekki afbóka mig nema í fulla hnefana (smá kaldhæðni í þessu orðatiltæki akkúrat núna!) Vil ekki bregðast kúnnunum mínum og Íslendingurinn í mér segir mér að harka þetta af mér.

Ég ákalla því alla góða verndarvætti norðurs, suðurs, austurs og vesturs og bið um alla þá heilunarmátta sem eru mér aðgengir úr öllum áttum og víddum. 

Er búin að eiga mikið bágt í dag.

P.s. svo vitni í annan snilling þá er ég búin að vera í algjöru sjokki í dag. (Binni Glee.) Vægt til orða tekið.

P.p.s. skrifað daginn eftir: mér líður miklu betur. Phew!

No comments: