Friday, March 4, 2022

Djúpið

Í dag er merkisdagur.

Uppáhalds stelpan mín á afmæli og er 9 ára í dag! 

Þetta þýðir að ég kem ekki til með að "eiga" 8 ára barn aftur í þessu lífi.

Ég er alveg sátt við það en þetta þýðir líka að ég er að fara að halda afmælisveislu fyrir barnið mitt í fertugasta sinn (!) um helgina. Lætur mér líða smá old en samt bara alls ekki.

Það er skrýtið að hugsa til þess hve lífið er háð tilviljunum. Hvað ef annað hvort okkar; ég eða Svanur, hefðum ekki verið akkúrat á ákveðnum stað, á ákveðnu kvöldi og hvað okkur varðar, á einmitt þessu augnabliki fyrir rúmum 16 árum síðan?

Á djamminu. Á Dillon. Hvað ef ég hefði bara gefið honum rangt númer til ad losna við hann? 

Þá væru tvær heilar manneskjur, tvö heil líf; Guðrún Halla Svansdóttir og Stefán Máni Svansson ekki til.

Eða er þetta allt saman skrifað í stjörnurnar? 

Allavega, er loksins alveg sátt við Guð og menn.

Hef ekki hugsað um að þurfa að fara á ástarfíklafund. 

Það er gott að eldast. Maður losnar við svo mikið kjaftæði á leiðinni þangað. 

Þrefalt húrra fyrir stelpunni minni. Síðasta barninu mínu.

Ég elska þig barnið mitt. Haltu áfram að vera góð.

P.s. hvað um öll augnablikin sem hefðu skapað allt öðruvísi veruleika fyrir fullt af fólki ef þau hefðu gerst augnabliki fyrr eða seinna? 

No comments: