Friday, February 16, 2024

Á hverjum degi

... kann ég betur að meta Taylor Swift.

Fyrstu dagana hér á Tene naut ég þess að skokka meðfram nærliggjandi strönd og syngja hátt með Karma is a God. Karma's a relaxing thought. Sweet like honey..  

Skil núna af hverju hún er svona vinsæl. Kynntist tónlistinni hennar í gegnum Guðrúnu Höllu sem elskar hana og kann alla textana.

Sá mann hérna í gærmorgun á ströndinni sem er hjá okkur gerandi það sama og ég gerði fyrstu dagana meðfram sjónum. Í barnslegri gleði baðaði hann út öngunum og hljóp berfættur eftir ströndinni, gerandi flugvél og svona næstum öskursyngja en það var það sem ég gerði fyrstu dagana með tónlist í eyrunum.

Fyrsta daginn gat ég bara hlustað á Taylor Swift á Spotify þegar ég fór út fyrir hótelsvæðið. Internetið öðruvísi hér. Það er ástæðan að ég gat bara hlustað á hana fyrsta daginn á ströndinni og fattaði hana. Náði henni.

Allt gerist af ástæðu. Ekkert gerist af tilviljun.

Taylor Swift. Þessi rödd. Þessi kona.

Megi allir góðir vættir fylgja þér veginn queen.

Namaste.

No comments: