Það er svo skrýtið að fylgjast með líkamanum sínum breytast.
Dag frá degi er ekkert eins og það var.
Húðin þynnri og ég nenni mjög fáu. Orkustigið lágt.
Tilfinningarnar eru alls konar. Vanalega bærilegar og góðar en eins og í dag er ég frekar flöt og sama um mjög margt.
Sama um hitt kynið og sama um útlitið.
Vikan hefur verið friðsæl.
Hápunktur vikunnar hefur verið að fylgjast með nuddrýminu blómstra í kjölfar þess að núna erum við bara tvær eftir. Allt önnur og betri orka.
Lágpunktur vikunnar hefur verið að láta mér detta í hug að ég fari ekki aftur á blæðingar. Ever. Bara finido.
P.s. hef tekið út fréttamiðla sem hjálpar geðheilsunni gífurlega mikið. Mæli heilshugar með.
Namaste.
No comments:
Post a Comment