Sunday, February 17, 2008

Brúðguminn


Mikil lifandi snilld er hann Baltasar Kormákur!

Myndin hans Hafið situr ennþá í mér og núna er komin ein önnur snilldin: Brúðguminn. Bíddu gerði hann ekki Mýrina líka?

Ég hafði sérstaklega gaman af Brúðgumanum af því að ég hef komið nokkrum sinnum til Flateyjar. Alger nostalgía sem sagt. Þessi eyja er svo falleg á sumrin! Ma + pa fara til Flateyjar á hverju sumri og ég treð mér alltaf með. Síðasta sumar í Flatey var hreint æðislegt. Veðrið var svo rosalega gott og rómantískt einhvern veginn. Náttúrufegurðin þarna er engu lík og víðáttan er... geggjuð! Maður sér svo langt sem augað eygir til allra átta. Þarna blasa Vestfirðirnir við og ... hmmm.. errr.. fullt af öðrum stöðum í allar áttir (þarf virkilega að fara taka mig á í landafræðinni..). Breiðafjörðurinn er að mínu mati með fallegri fjörðum landsins með allar sínar óteljandi eyjar. Ég hef nú reynar aldrei komið á austfirði og fullt af öðrum stöðum.. eehhmmm..

Garg! Af hverju er ekki alltaf sumar!!???

Allaveganna. Við amma fórum á Brúðgumann í gær og höfðum báðar gaman af. Við vorum samt mikið að spá í því hvað Baltasar var að reyna segja með þessari mynd. Ástin kom mjög illa út og var eiginlega bara dauðadæmd. Sem er bara alls ekki nógu gott...

Það var líka gaman að þekkja smá til sögu eyjarinnar og hafa komið inn í kirkjuna þar sem Baltasar Samper gerði altaristöfluna ásamt.. móður Baltasars? Allaveganna, það er greinilegt að Baltasar ber sterkar taugar til eyjarinnar og kirkjunnar. Enda mjög sérstakt og heillandi allt saman:)

Mæli með þessari mynd. Pirrandi samt hvað það er dýrt á íslenskar myndir..

3 comments:

Tinnsi said...

Er hann ekki bara ad reyna ad segja soguna um Ivanov, radvillti unglingurinn sem ekki gat tekist a vid ad brudurinn hans var veik? Eg hef ekki sed myndina, bara leikritid, thad var lika super.

Svava said...

Hef ekki hugmynd. Ekki búin að sjá eða lesa Ivanov. Mér fannst aðalleikarinn (Hilmar Snær) ekki vera neitt sérstaklega hrifinn af konunni sinni (þeirri sem var veik). Mér fannst hann heldur ekki vera ástfanginn af skólastelpunni. Bara svona forvitinn. Mér fannst hann yfir höfuð ekki vera sérstaklega ástríðufullur, tja nema þegar hann gekk í sjóinn kannski á eftir konunni sinni..

Svava said...

Hef ekki hugmynd. Ekki búin að sjá eða lesa Ivanov. Mér fannst aðalleikarinn (Hilmar Snær) ekki vera neitt sérstaklega hrifinn af konunni sinni (þeirri sem var veik). Mér fannst hann heldur ekki vera ástfanginn af skólastelpunni. Bara svona forvitinn. Mér fannst hann yfir höfuð ekki vera sérstaklega ástríðufullur, tja nema þegar hann gekk í sjóinn kannski á eftir konunni sinni..