
Ég lofa að þetta er ekki orðið að einhverju barnabloggi en maður bara verður að montast aðeins af nýja meðlimnum í fjölskyldunni:) Hér eru aðeins fleiri myndir:

Við fórum með hann í 5 daga skoðunina í dag og fengum staðfestingu á því sem við vissum: þetta er fullkomið barn. Ekkert vesen. En það kom enn betur í ljós í skoðuninni að Máni býr yfir hæfileika. Hann pissar ótrúlega kröftuglega! Um leið og læknirinn kom að skoða hann pissaði hann á hann og mig (upp í mig og BEINT framan í mig). Hann lét ekki kyrrt við sitja og pissaði yfir vegginn yfir á næsta skiptiborð og úðaði líka á gólfið og smá á gallann sinn en auðvitað ekki mikið þar sem hann hefur líklegast fundið á sér að hann þyrfti nú á honum að halda til að fara aftur heim;)

Lífið er ást og hamingja:)
4 comments:
Mani er fallegt nafn. List rosalega vel a tetta allt saman og samgledst ykkur alveg innilega. Ja lifid er yndislegt!
Takk elskan:) ég vona að þú hafir það gott í Ameríkunni og líðir vel í tönnunum þínum. Kiss kiss
Rosalega er hann flottur strákur! Nafnið er líka alveg frábært ;)
Hlakka til að fá að sjá hann í eigin persónu.
Takk Vanda:)
Post a Comment