
Ég hafði bara svo skelfilega slæma reynslu af sjálfri mér upp í púlti. Man sérstaklega eftir einu skipti í stjórnmálafræðinni í leiðtogakúrs. Þar var mér hent upp í púlt alveg óundirbúnni fyrir framan allt kúl liðið sem var að læra með mér á þessum tíma. Ég fraus og kom varla upp orði. Þetta var eflaust með verstu augnablikum lífs míns, ég man mig langaði hreinlega bara til hverfa af yfirborði jarðar þetta var svo hræðilegt.
EN, það er einfaldlega kominn tími til að let buy gones be buy gones, sætta sig við orðinn hlut og reyna aftur.
P.s. Mig langar mest í heimi að fara á Hótel Búðir og vera þar í viku eða svo. Ekki með börn. Allaveganna ekki með börn allan tímann. Æ, ég gæti nú aldrei farið frá Mánaskini svona ungum en þið vitið hvað ég meina..
1 comment:
Svaka flott hjá ykkur að fara á svona námskeið. Ég held að aðalatriðið sé að vita nákvæmlega hvað maður ætlar að segja og síðan bara æfa sig þangað til maður verður þreyttur á að hlusta á sjálfan sig.
Post a Comment