Það var alveg hreint yndislegt að komast upp á fjall. Við fórum í Skálafell þar sem það var lokað í Bláfjöllum. Þrátt fyrir að hafa eytt um 1 og 1/2 tíma í skíðaleigunni skemmti ég mér konunglega með Óla og Svani. Ég var nú reyndar eins og byrjandi sjálf það er svo langt síðan ég fór á skíði...
Þess vegna sætti ég mig alveg við að vera bara í barnalyftunni. Veðrið var líka yndislegt:)
Já, og takk mamma fyrir að passa Stefán Mána á meðan og lána mér skíðin þín
2 comments:
Ohhh, hljómar alveg yndislega. Núna langar mig á skíði.
Segðu! Mig langar svoooo aftur..
Post a Comment