Saturday, January 16, 2016

shitturinn titturinn

Jæja.

Er í svo miklum komplex hvað ég á að gera við líf mitt vinnulega séð að það hálfa væri nóg. Allar sjálfshjálparbækurnar segja að maður eigi að vinna við það sem maður hefur gaman af að gera/elskar. Ég sé mig einhvern veginn fyrir mér í meðferðarherbergi svona eins og þegar maður fer í nudd að gefa einhvers konar heilandi meðferð. Veit ekki alveg hvað það er en ég held að ég geti ímyndað mér sjálfa mig sem einhvers konar svona heilandi meðhöndlara... hvað ég á svo að gera við þessa sýn veit ég ekki.... 

Er búin að skoða heilunarskóla hérna heima en no offens þetta virkar svo kúkú eitthvað... Var að skoða Snyrtiskólann af því að mér datt í hug að fara þangað en nei, það kostar á aðra milljón og ég get bara ekki farið að eyða meiri pening í nám.. Námið þar er eitt ár en æ, dí.... Skoðaði líka Nuddskólann en einmitt, frekar langt nám og dýrt.. Og maður þarf eiginlega bara fastar tekjur. Það er bara þannig....

Af hverju er lífið svona flókið?

3 comments:

Tinnsi said...

Kannast við tivistarkreppu í svipuðum dúr. Gætir byrjað á því að læra eitthvað sjálf, heima, upp á eigin spýtur. Það er allskonar í boði t.d. á coursera. Ég er í spænsku námi á babbel.com. Það er skemmtilegt og víkkar sjóndeildarhringinn. Annað sem mér skilst að hjálpi manni að vera sáttari í vinnunni er að vera með eitthvað skipulagt hobbí sem maður gerir eftir vinnu eða um helgar.. lerilistanámskeið etc. Fólki hættir til að verða súrt í draumastarfinu ef það borgar ekki mjög vel..

Svava said...

Takk Tinna. Einmitt það sem ég þurfi að heyra:) Held nefnilega að það sé málið. Eins mikið og ég elska yoga og hugleiðslu þá sé ég mig ekki þéna 500.000 kr á því...

Svava said...

... á mánuði. Maður er komin með skuldbindingar í lífinu, börn og heimili, og maður getur eiginlega ekki elt svona einhverjar flugur sem maður fær í hausinn. Það er líklegast stressandi að sjá til þess að maður þéni nóg í svona meðhöndlara starfi eða hvað ég var að spá í. Kannski langar mig bara í nudd. Held að það sé málið...