Er dáldið mikið fyrir að prufa nýja hluti þessa dagana.
Í gærkvöldi prufaði ég flotþerapíu eða flot meðferð. Veit ekki alveg nákvæmlega hvað þetta er kallað. Viðhöfnin átti sér stað í sundlaug í Mörkinni. Allt frekar kósý en ég var frekar einmana. Veit ekki alveg af hverju. Hef oft farið á svona viðburði áður ein en þarna voru vinkonur í eldri kantinum að fara saman og ég öfundaði þær. Ekki af því að vera eldri heldur að vera fara saman. (Hvernig ætli Svíþjóðarferðin verði...?)
Allavegana, við byrjuðum á stuttri tengingu og kynnt var fyrir okkur hvað væri að fara gerast. ... Þetta var dásamlegt. Þarna flaut maður láréttur með flothettuna sína og dæmið utan um hnén sem passa að þau sökkvi nú ekki og í hallærislega mömmusundbolnum sem ég verð að fara skipta út. Minnir mig á sundbolinn sem leikkonan í Pabbahelgar er í:) Setti í forgang á verkefnalistanum að skipta honum út eftir tímann.
Síðan var maður umvafin hreinlega. Af umvefjandi konum sem tóku mann í fanginn og létu mann fljóta allskonar. Svo fékk maður meira að segja handa og fótanudd og smá hálsnudd!
Sultuslök á eftir. En dreif mig heim. Fannst klukkan verða orðin svo mikið þó hún væri bara 21:30 ég þegar ég horfði á hana og var ennþá í lauginni. Líka af því ég nennti ekki að vera ein þarna lengur. Hvernig á leiklistarnámskeiðið að vera? Það er til 22:00!
Omg. Ég er alveg.
Líður ofboðslega undarlega í hryggsúlunni. Hún er ekki vön að fljóta svona í lausu lofti. Á einum tímapunkti í flotinu í gær þegar ég var í hugleiðslu varð ég allt í einu rosalega meðvituð um hálsliðina mína. Leið undarlega í þeim og á öðrum tímapunkti á öðrum stað í hryggsúlunni. Hef grun um að það hafi verið í neðri hryggskekkjunni. Hlýtur að vera gott fyrir bakið að fljóta svona í lausu lofti.
Það voru ilmkjarnaolíur, ilmkerti og hugleiðsluhljóð í endann.
Dásamleg reynsla en dáldið einmanaleg.
No comments:
Post a Comment