Vá. Gærdagurinn var eitthvað.
Varð vitni að því upp í skóla að heilari lagaði þann sem var með mesta bakverkinn með því að strjúka á konunni kvenlegu hliðinni og segja henni að sleppa og fyrirgefa. Kaldir gustar streymdu í allar áttir í bunum frá bekknum. Frekar magnþrungið.
Um kvöldið fór ég svo langt út fyrir þægindarammann að ég er eiginlega hálf eftir mig. Fullt af extrovertum og svo ég saman á spunanámskeiði. Ærslaðist og fíflaðist með ókunnugu fólki allt kvöldið. Var líka smá að berjast við feimni og frammistöðukvíða en samt alls ekki.
Rosalegt kvöld.
1 comment:
Vá hvað ég er stolt af þér!! Ekkert smá flott!
Post a Comment