Elska svona daga eins og daginn í dag.
Rosa erfiður. Eða ekki.
Mér finnst gott að byrja vikuna svona. Það er mánudagur og ég hef þessa vikuna með því að fara semi seint framúr. Ekkert stress fyrr en ég átta mig á því að ég er að verða of sein í nudd. Mér til afsökunar (stundum skammast ég mín fyrir hvað ég hef það gott) þá var ég prófdómari uppí skóla í klassísku nuddi. Slakaði alveg á en þurfti líka að hugsa smá (ekki mikið) og fylgjast með strokum, ásetningi og svoleiðis...
Er svo hérna heima að þrífa (alls ekki mikið) og lesa og taka til í skápum áður en ég fer í litun og plokkun á eftir.
Þarf svo eitthvað að spá í mat fyrir fjölluna áður en ég fer í KAP í kvöld (liggja og hrisstast.)
Mánudagur til mæðu, my ass:)
Knús á ykkur og lífið elskur.
No comments:
Post a Comment