Wednesday, February 12, 2020

Aldurstengd tilvistarkrísa vol xxxi

Var að væflast á Youtube um daginn.

Ekki í frásögur færandi nema hvað að ég sé auglýsingu um dating app. Beint að mér.  Fyrir 40+ ... Eins og síminn sé búin að átta sig á því að það sé ég. 

Ég var smá stund að átta mig á því að það væri ég. Ég!

Varð móðguð. Svo komu alls konar tilfinningar. Ekkert sérlega jákvæðar. Líður bara alls ekki eins og að þessi tala eigi við mig. Hélt að þetta væru kannski mistök.

Finnst eitthvað svo erfitt við þetta. 40+ ?!

Is there no going back?😱

No comments: