Elska fræ.
Svona jákvæð fræ. Sem fólk segir við hvert annað. Fræ sem eru sett í garð hugans og vaxa þar og dafna.
Segi oft við 6 ára dóttur mína að hún sé best, flottust og fallegust. Að ég elski hana.
Í dag fékk ég sjálf fræ frá kúnna í vinnustaðanuddinu:
"Ég heyrði að þú hefðir töfraputta."
Önnur sagði að hún hefði orðið alveg góð eftir síðasta nudd og núna væri hún komin bara til að njóta.
Enn ein sagði svipaða sögu og svo sagði húsvörðurinn að allir væru ánægðir og endurnærðir eftir nuddið.
Í allri minni hógværð set ég þessi fallegu fræ djúpt í vitund mína og vökva eins og viðeigandi er með falleg fræ og passa upp á birtustigið.
Auðmjúk og þakklát.
Jeij me❤
No comments:
Post a Comment