... fyrsta vika ársins...
er dáldið eins og að labba glaður og til - í - allt orku áfram veginn en verða svo ítrekað fyrir skotum úr ýmsum áttum. Hef náð að sveigja mig, bugta og beygja frá þeim en finn að þetta reynir aðeins á þolmörkin:
Mánudagur: Gleðilegt nýtt ár Svava:) þú missir aðstöðuna núna. Færð að vera út janúar.
Þriðjudagur: ný kona tekur yfir aðstöðuna. Bekkurinn minn er líklegast óhultur en úti í horni.
Miðvikudagur: engin vinna vegna covid. Tekjumissir vegna þess en ég er fegin af því að ég er að díla við verk. Bólgur í þvagpípum segir innsæið mér. Poppa pillum þ.á.m. parkodín forte til að geta sofið um nóttina og brýt neyðarglerið svo ég komist í hálfa svefntöflu. Aðeins notað í ítrustu neyð en sársaukinn var þannig. P.s. neyðarglerið er myndlíking. Síðar þennan dag, um kvöldið reyndar, kemur í ljós að upp hefur komið smit í bekknum hennar Guðrúnar Höllu. Barnið er komið í smitgát.
Fimmtudagur: engin vinna vegna covid og þá sérstaklega vegna smitgátar barnsins. Tilheyrandi tekjumissir sem enginn grípur.. konan er orðin lúnkin í að taka út af kreditkortinu og setja inn á Vörðureikninginn til að redda mánaðarmótunum. Búin að redda þeim. Skoða aðra aðstöðu og fæ inn í næsta húsi við núverandi aðstöðu eða í Suðurlandsbraut 32. Öryggisfíkillinn róast en er samt andvaka yfir þessum breytingum nóttina eftir sem var síðasta nótt. Fékk þó ekki að fara sofa án þess að frétta að það væri komið upp covid smit í bekknum hans Stefáns líka.
Föstudagur: fyrirhugaðri Sky lagoon ferð með stelpunum aflýst vegna covid. Aftur. Er að fara með Stefán í hraðpróf. Óli minn er í sóttkví. Fyrirhuguð hótel ferð með makanum er í stórhættu.
Er nokkuð róleg þrátt fyrir allt. Heilaði verkinn í burt. Hann er samt ekki alveg farinn. Þurfti bara að poppa þremur panodil og einni ibúfen fyrir svefninn í gær sem er framför.
Haltu bara áfram, árið 2022. Er búin að dansa alla dagana, syngja alla dagana, hlaupa, hlæja, yogast, heila, njóta ásta, hitta vinkonu ...
Keep em coming. Er ónæm fyrir hvers kyns veseni og sjúkdómum núna.
Ónæm.
Held áfram að sveigja mér framhjá skotum þínum. Dansandi glöð.
No comments:
Post a Comment