Thursday, January 13, 2022

Skælandi

Er ekki búin að skæla mikið í vikunni...

... en var næstum því farin að skæla á mánudaginn af því að ég er að missa aðstöðuna af því að mér hefur alltaf liðið svo vel þarna og svo núna áðan, á fimmtudegi.

Kom heim úr vinnunni og fjölskyldulífið var í fullum skrúða eins og flesta daga síðustu 19 ár. Rifjaði upp þegar ég fékk einu sinni að vera ein í bústað yfir helgi. Bara ég. Ein.

Tilfinningin var svo yfirþyrmandi og þörfin svo rík að það munaði engu. Núna skil ég af hverju fólk fer að gráta þegar það vinnur eitthvað. Gleðin verður of mikil og fer á yfirsnúning. Of yfirþyrmandi. 

Veit samt að ég myndi endast í sirka viku ein í bústað. Tops.

P.s. ákvað fyrir þó nokkrum mánuðum síðan að horfa á Suits frá upphafi. Hámglápa. Er ennþá að. Á samt ekki marga þætti eftir. Það var ástarsaga í gangi í þættinum sem ég horfði á í gærkvöldi. 

Forboðin ást. 

Það var nóg til að ég skældi smá í morgun. Held að það hafi verið eina skiptið sem ég actually skældi í vikunni.

No comments: