Monday, January 24, 2022

bleak

Im having a week. Again. Árið varla byrjað og vikan ekki heldur. Þegar svona ber undir finnst mér gott að blogga hvern dag vikunnar fyrir sig. 

Skrýtið hvernig allt er í gangi og ekki neitt. 

Mánudagur:

Örvæntingarfulla húsmóðirin okkar er í sóttkví. Ekki sjálfskipuð til að introvertast heldur alvöru. Sjálft smitrakningarteymið hafði samband. 

Vita þau ekki að ég er tekjulaus á meðan? Smá tillit? Ekki?

Allavegana, ljótan er á hættustigi. Úlpan mín er biluð og ég nota úlpu af fullorðna barninu mínu í staðinn. 

Coming up: PCR próf á morgun. 

Þriðjudagur:

Ok. Var ekki alveg að gera mér grein fyrir hvað svona ástand leggst á sálina mína. Hefði átt að vita betur og taka hálfa svefntöflu fyrir svefninn í gærkvöldi. Þá hefði ég kannski sofið eitthvað. 

Ef ég greinist jákvæð fokkar það svo mörgu upp. Utanlandsferð og andlegri heilsu svona helst. Fjárhagnum líka (meir.) 

Var á chattinu við sky lagoon stelpurnar. Þær eru allar nýbúnar að fá covid. 

Þetta tímabil sem maður er að bíða eftir niðurstöðunni er svo steikt. Er helluð á því eftir svefnlausa nótt og skæli á eftir hver sem niðurstaðan er. Er með smá hita en hef áður veikst af covid áhyggjum svo ég veit ekki alveg.

Stay tuned.

Update: er neikvæð!!

Miðvikudagur:

Allt er æði. Dansaði í klukkutíma hérna heima í gær eftir góðu fréttirnar. Er smá skotin í sjálfri mér og mínu góða ónæmiskerfi. Ljósið kom til mín í wim hof öndunaræfingu dagsins. Vann vel í dag. Allir ánægðir með mig. Er æði. Takk ég.

Fimmtudagur:

Þrátt fyrir að vera frjáls frá covid og öllum þeim leiðindum átti ég erfitt með gleðina þennan dag. Ég spyr: Hvar er sólin? Hvar er birta vors daga? Almennilegur janúar blús bara þennan dag því miður.

Föstudagur:

Loksins vinkonuhittingurinn í Sky lagoon. Það er svo gott að vera með bestu vinkonum sínum. Við þekkjumst út og inn. Aðstæður í lóninu voru ekki góðar. Það var hávaðarok og við hröktumst eiginlega beint í dekrið (nema það voru fjöldatakmarkanir vegna covid og við komumst ekki beint að.) Þetta var því stutt gaman en vissulega gaman. 

Í stuttu máli sagt þá get ég varla beðið eftir að fljúga í burtu. Það er til alvöru sól og blíða. Ég veit það. Það er ekki blekking.



No comments: