... ársins hjá húsmóðirinni var hérna á Tenerife um daginn.
Húsmóðirin okkar álítur sig vera í fríi þrátt fyrir nærveru eiginmanns og barna og ákvað að skella sér í nudd. Yfirskinið var kannski að læra nýjar aðferðir en samt aðallega að chilla. Það varð hins vegar ekki mikið um chill þar sem aðstæður kölluðu á óskipta athygli okkar konu.
Nuddstofan er kínversk og starfsmaðurinn var bara þessi eina kona sem ég geri ráð fyrir að sé kínversk. Enskukunnáttan var allavega engin. Þetta er svona walk in og Svanur borgaði fyrir mig klukkutíma og fór svo. Þetta er hérna rétt hjá hótelinu.
Eins og ég lærði í heildræna nuddinu í nuddskólanum þá er best að vera nakin í nuddi. Atvinnu nuddþegar eru naktir í nuddi. Mikil áhersla var lögð á það í skólanum að bera virðingu fyrir nuddþeganum og auðvitað hylja nekt hans at all times fumlaust og af fagmennsku. Ég átti því kannski von á svipuðu og man að hafa hugsað hvað kínverskar konur eru spéhræddar heima í sundlaugunum og í Bláa lóninu.
Umrædd kona var greinilega ekki ein af þessum konum.
Í skólanum var mælt með að fara sjálf í nudd og læra þannig hvernig atvinnu nuddarar vinna. Við áttum meira að segja að gera skýrslu. Þetta var verkefni. Ósjálfrátt set ég mig stundum í þessar stellingar þegar ég fer í nudd. Finnbogi, meistarinn minn og lærifaðir, var mættur á öxlina mína og fylgdist með. Heyrði hann kommenta á nuddið í hugarfylgsnum mínum.
Sko. Ólíkt öllu sem ég lærði og hef kynnst hafði konan bara bréf á nuddbekknum. Verandi nakin bjóst ég fastlega við að hún myndi breiða eitthvað yfir mig á viðkvæmum stöðum. Það gerði hún ekki heldur færði einhverja litla pjötlu tilviljanakennt bara eitthvert yfir. Ekkert yfir nakin afturenda frúarinnar eða síðar brjóst og kynfærasvæði þegar hún var búin að snúa mér við. Nei nei.
Ekki heldur þegar hún nuddaði innanverð lærin lengst upp í klof.
Það var ekki einu sinni þægileg kósý birta inn í þessu litla rými heldur bara frekar brutal lýsing (á minn mælikvarða.)
Þegar nuddið var nýbyrjað tók hún símtal. Bara hætti og tók stutt símtal. Þegar hún var að nudda hálsin skarst úrið hennar í eyrað mitt. Það var mjög óþægilegt. Aftur, enskukunnátta hennar var engin.
Húsmóðirin okkar var samt auðvitað eins og ljós og þakkaði kærlega fyrir sig og kvaddi með virktum.
Síðan varð hún hugsandi yfir kínverskum konum og menningarlegum árekstrum.
No comments:
Post a Comment