Echart Tolle hefur kennt mér mikið. Hann er höfundur bókarinnar The power of now og er vinsæll hugsuður. Hann var mjög þunglyndur, fékk vitrun og frelsaðist frá þjáningu með að halda sér í núinu. Hann fattaði að hann var ekki hugsanir sínar og fann hamingjuna.
Hann talar um the pain body og á þá ekki bara við um líkamlega þjáningu heldur þjáningu yfir höfuð. Hérna er Echart með Oprah Winfrey:
Allavega, ég sigldi bjartsýn inn í 2023 með háleit markmið um að vera ekki í the pain body.
2.jan um kl 20:27 sat ykkar kona að vanda í sófanum bara frekar hamingjusöm og gantaðist við eiginmanninn. Á núll einni byrjaði blindandi sársauki á mjög sérstökum stað neðst í mjóbakinu sem konur einar þekkja. Blæðingar framundan.
Þannig hefur fyrsta vika ársins verið eins og splatter bíómynd full af blóði og þjáningu. Ég hef þurft að hafa mig alla við að sinna þessu. Daglega þakka ég fyrir að vera ekki í 08 - 16 vinnu. Daglega.
Ég hefði bara ekki getað mætt.
Staðan var þannig í morgun að mér leið eins og þyrfti blóðgjöf. Allavega, held að þessi ósköp séu að klárast. Er slöpp samt.
Echart talar líka um hvernig við löðumst að öðrum pain body-um. Hvernig við tengjum við aðra sem þjást og löðumst jafnvel að þeim. Fáum einhvers konar unað úr sársaukanum.
Athyglisvert.
Namaste.
Vikan hefur verið: blóðug
Plata vikunnar: Metallica 🤟
Markmið vikunnar: spara með því að fara ekki í Samkaup
Pain body: 100%
No comments:
Post a Comment