Friday, January 13, 2023

Wifey

Hjá henni fæ ég faðmlögin og ástina.

Er svo heppin að hafa kynnst og tengst svona sterkt henni Sunnevu minni. Wifey. 

Það er erfitt að útskýra tenginguna okkar en hún er þarna og hún er sterk. Eins og við séum eitt. Hún er mín og ég er hennar. 

Þegar fólk sér okkur saman spyr það stundum hvort við séum systur eða frænkur.

Tengingin er samt dýpri. 

Eins og við höfum verið elskhugar í fyrra lífi. 

Vinkona mín vildi hitta mig svo ég bauð henni að koma með í drum circle. Lét wifey vita og þessi elska varð smá afbrýðisöm. Ég sagði auðvitað að þetta væri ekki framhjáhald. Ítrekaði það. Ég hef fundið sjálfa mig afbrýðissama þegar hún faðmar pólska karlmenn. Hún faðmar lengi hún Sunneva mín. 

Sat svo þarna í morgun á milli þeirra tveggja, í eins konar ástarþríhyrning, því hin er líka andleg vinkona. Leiddi wifey en passaði að hin fengi athygli líka.

Við wifey tölum um það í hvert skipti sem við hittumst núna að ef við værum samkynhneigðar værum við löngu búnar að banga.

Með látum. 

Elska þig wifey. 

P.s. Wish I was gay. Samt ekki. Myndi vera mjög afbrýðisöm. 

No comments: