... en í guðs bænum virtu mörk hennar.
Ætli hjónaband sé ekki eins og að eiga barn. Það besta í heimi en jafnframt það allra erfiðasta. Þegar það er gott er það best en þegar ekki er það hræðilegt.
Fyrir highly sensitive manneskju eins og sjálfa mig sem þarf mikinn tíma ein og í friði getur tekið á að vera með manni í hjónabandi sem er ekkert eins og ég og er með þarfir og væntingar og vesen.
Þegar við giftum okkur var ljóð í einu kortanna sem við fengum í veislunni sem mér er hugsað til núna.
Eitthvað í sambandi við að vera í veröldinni hálf manneskja en með öðrum heil.
Ekki vil ég valsa um hálf manneskja í veröld þar sem einmanaleiki er vaxandi vandamál. Það er samt djöfull erfitt að vera heill stundum.
Vikan var alls konar, vinnusöm og ekki. Mikið á lífið eftir að breytast mikið í næstu viku þegar skólinn byrjar.
Markmið vikunnar var meðal annars að fara í hot yoga. Það var fínt en ég var rosa svekkt yfir hvað ég er stirð. Var hot yoga queen fyrir ekki svo löngu.
Hápunktur vikunnar var þegar ég dansaði í náttúrunni á tánum í gær hér á Snæfellsnesi þar sem árleg veiðiferð fjölskyldunnar var um helgina.
Lágpunktur vikunnar voru nokkur skipti þar sem orkan mín tæmdist og ég varð óhóflega þreytt. Maður og barn sjúga stundum úr mér orkuna:(
No comments:
Post a Comment