Er búin að fá óvenju mörg hrós fyrir vinnuna mína þessa vikuna.
Ok, bara tvö. En mjög sterk tvö. Er svo þakklát fyrir að hafa fundið minn tilgang. Mitt dharma. Það er gefandi að gefa.
Vikan er búin að vera snarbiluð. Í gær var ég með of marga bolta á lofti. Sem sagt ólaunuðu heimilisverkin sem gerast ekki nema ég geri þau (1) Nuddið (2) þar sem ég fór heim á milli kúnna til að sinna Grjótavík ehf. (3) en þar er ég að setja inn í excel skjal vörubílaakstur í fyrirtæki mannsins míns. Byrjaði samt daginn á Mímis vinnunni (4) þar sem ég er að búa til að verkefni fyrir nemendurnar að vinna í tímanum. Ok, þetta eru bara fjórir en ég var næstum búin að missa þá alla í gærmorgun þegar fáránlegur hlutur gerðist einmitt þegar ég var að vakna.
Guðrún Halla var að gera boozt í morgunmat en allt fór úrskeiðis þegar hún var að taka botninn úr og málmhlutir fóru að fljúga í allar áttir. Þetta fór vel og hún er OK en þetta hefði getað farið miklu verr og það sat í mér til hádegis allavegana.
Í dag þarf ég að fara yfir þau myndbönd sem ég ætla að sýna á mánudaginn í Mími. Sum þeirra eru orðin ansi gömul. Þarf aðeins að upgrada.
Er annars bara afskaplega glöð að það er komin flöskudagur (djók, ekki djók) Það er orðið að hefð hjá mér að fá mér rauðvínsglas um kl 17 á föstudögum. Það gerir húsverkin aðeins skemmtilegri. Búin að komast að því að ef ég er með þunglyndi þá eru þau rótin.
Namaste. Ljósið í mér sér ljósið í þér.
No comments:
Post a Comment