Friday, November 1, 2024

Skrýtið, skrýtnara, skrýtnast

 Aldurinn maður. Aldurinn.

Þetta er svo skrýtið. Ég er eiginlega alltaf jafn hlessa þegar ég horfi á lappirnar mínar þegar ég sit á klósettinu. Húðin á lærunum er lausari, það eru komin einhvers konar æðaslit rétt hjá hnjánum og oft líður mér asnalega í líkamanum. Hann er allur að breytast. Þetta er ekki sami líkami og áður.

Það var fyrir þónokkru síðan, jafnvel talið í misserum, sem mér leið eins og mjólkurfernunni í Samkaup. Að fara renna út eftir nokkra daga. Best fyrir .. og sú dagsetning er liðin. Þetta breytingaskeið er erfitt og skrýtið. Maður þarf að fatta þessa hormóna. Allt er að breytast. 

Fattaði í gær að stelpan sem ég er að leigja með er heilum 20 árum yngri en ég sem er orðin amma. Allt er skrýtið. 

Vikan var nú bara þokkaleg. Besti dagurinn var þegar Styrmir var hér. Er að spá í að fá mér noona appið svo það sé alltaf nóg að gera í aðstöðunni. Svo þegar ég ákveð það fyllast vikurnar af bókunum frá kúnnum sem ég hafði fyrir, held að næstu tvær vikur séu þétt setnar. Þær voru það ekki fyrir nokkrum dögum. Maður bara veit aldrei. 

Hápunktur vikunnar var þegar Styrmir var hérna á þriðjudaginn. Hann heldur ömmu sinni á tánum.

Lágpunktur vikunnar var í fyrrinótt þegar verkur hélt fyrir mér vöku nokkurn veginn alla nóttina. Stundum gerist þetta. Maginn á mér varð eins og bolti. Eitthvað í gangi í kviðarholinu, giska á í þvagfærakerfinu. Tók alveg fullt af verkjalyfjum og svefntöflu því ég vissi að þetta yrði eitthvað en það dugði ekki til. Sem betur fer er verkurinn farinn.

Verkefni vikunnar er þetta noona app. Þetta er dáldið flókið því ég er ekki færibandanuddari. Ég vil ekki vera með marga á dag og ekki heldur að vita ekki fyrirfram hvernig dagskráin er. Finnst óþægilegt að vakna á vinnudegi og vita bara ekki hvort ég sé með kúnna 12:30 eða ekki.

Social vikunnar er heldur betur í kvöld. Stundin er runnin upp. Það er Skálmöld í kvöld.

Biðjið fyrir mér.

Namaste.

No comments: