Friday, October 25, 2024

hlýja

 Hjá mér er ömmustrákur. 

Hann labbar um með snuddu og lúlla sinn. Mjúkur, hlýr, nýr. 

Vikan er búin að vera alls konar. Er mikið búin að vera með Styrmi vitandi vel að þetta eru tímar sem koma aldrei aftur. Bráðum byrjar hann á leikskóla og þá eru þessar stundir okkar búnar. Kannski fæ ég hann á starfsdögum og svoleiðis, hver veit.

Það er komið að því að mér er farið að leiðast. Það er ekki gott. Framkvæmdastjórinn í framheilanum (eða hvar sem hann nú er) er á verði því hann veit fullvel að ég get ekki verið hvar sem er. Er farin að huga að aukavinnu. Hann man vel svefnlausu næturnar fullar af kvíða af því að mér leið illa í vinnunni. Er því að secreta aukavinnu sem hentar mér vel. Er orðin þyrst í félagsskap, að tilheyra hóp. Vinna með fólki. Lofaði sjálfri mér að ég myndi ekki vera með yfirmann aftur og að ég yrði yfirmaðurinn minn. Er bara allt of góð við sjálfa mig og hugsa of lítið í peningum (hey, kaupi miða í lottó.)

Hápunktur vikunnar var þegar ég dreif mig á foreldrafund í Hlíðaskóla. Er bara ferlega ánægð með mig. Fann að félagsskapurinn var næring og hvað það var gott að hitta fólk. Hitti konu frá RUV sem er líka með barn í árganginum (sem er stór; 77 nemendur) og við knúsuðumst. Hitti líka skólasystur Óla og talaði við hana. Meira svona!

Lágpunktur vikunnar var þegar ég var næstum farin að gráta af einskærum leiðindum. Það er líka farið að saxast á peninginn svo það er ekki eins og ég geti farið út að spreða þegar svona ber undir. 

Social vikunnar var bæði að ég fór í Móa á mánudaginn í Kraftcacao tíma til Maríu. Það var ágætt. Líka foreldrafundurinn. Svo ánægð með mig. Tók mikið eftir því að stofan var með slæm loftgæði og gluggar lokaðir og fullt af fólki. Á erfitt með svoleiðis en það reddaðist.

Það styttist í næstu helgi sem er helgi sem ég horfi bara á í huganum og skil ekki. Hvernig er ég að fara á tvo dauðarokkstónleika og sé ekki fram á að komast heim til mín fyrr en um miðnætti eða eitthvað? Tvö kvöld? Svo er líka handboltamót OG skírn. 

Verkefni vikunnar var að redda aukafötum á Styrmi. Fór í barnaloppuna og keypti eitthvað. Buxur og peysu, vona að það passi.

Namaste.

 

No comments: