Friday, October 4, 2024

Klandur

Mér finnst þetta næstum því fallegt orð; klandur. Stundum er íslenskan að gefa, sjaldan er að hún að taka. Nema kannski þegar maður getur ekki þýtt beint úr ensku. Var einmitt að lesa um svoleiðis dæmi í bókinni sem ég er að lesa Ból eftir Steinunni Sigurðardóttur. Mjög góð bók.

 Allavegana, áttaði mig á því í gær þegar ég ákvað að hlusta á Skálmöld þar sem ég er víst að fara tvenna tónleika með þeim fyrstu helgina í nóvember; að ég meika þetta varla. Dauðarokk beint í æð þar sem mér skilst að við verðum næstum fremst á einum af tónleikunum. Hef áhyggjur af taugakerfinu mínu hreinlega. 

 Manni er kennt að vera manneskja í flestum sjálfhjálparbókum og af flestum lífskúnstnerum. Ef lífið bíður þér eitthvað, segðu JÁ! Pee into the wind! 

Þegar Sunneva vinkona mín í Svíþjóð bað mig um að koma á tvenna Skálmaldar tónleika í Hörpunni gerði ég einmitt það; JÁ! Gerði rokk emoji. Rock and roll. Núna sé ég fram á það að þurfa að jafna mig allavegana allan daginn eftir fyrstu tónleikana á föstudagskvöldinu. Neurotypical fólk skilur þetta ekki en þegar maður er viðkvæmur þá er það stundum þannig. Það er handboltamót aftur hjá Guðrúnu Höllu þessa helgi! Einmitt þessa helgi, ekki helgina fyrir eða eftir heldur einmitt þessa helgi. Svo er líka skírn á sunnudeginum sem er nú bara dúllulegt og ég hlakka til hennar. Týpískt ég að hafa massa áhyggjur af helgi sem er frekar langt í burtu einmitt núna. Allt social á einni helgi.

Vikan var nú bara dásamleg. Hérna voru litlir fætur í litlum skóm með mér tvo daga. Við Styrmir (17 mánaða) skiljum hvort annað og þurfum ekki orð. Við bara bendum og gerum hljóð. Var svo með góða kúnna í gær, báða bandaríska. Það vantar nú ekki verkefnin í dag svo ég hef nóg að gera.

Verkefni vikunnar var að redda barnabílstól fyrir Styrmi. Hann verður víst að vera afturábakvísandi svo ég fór í barnabilstolar.is og tók á langtímaleigu einn slíkan sem er ISOFIX og á að duga þangað til hann verður 4ra ára. Verkefni vikunnar tókst vel. Var reyndar lengi að finna staðinn upp á höfða en það tókst.

Hápunktur vikunnar var þegar ég tók geggjara og keypti hillur á netinu fyrir fullt af pening. Tekk.is. Það er svona þegar eitthvað tekur of langan tíma þá urlast ég smá og geri eitthvað svona. Hillurnar eru komnar í hús en ekki upp á vegg. Hlakka til að sjá þær þar.

Lágpunktur vikunnar var þegar ég þurfti að fara á salernið heima hjá mér með eins árs barn. Endaði á því að taka hann með mér og leyfa honum að horfa á Skoppu og Skrítlu á meðan ég gerði það sem þurfti að gerast. Hann var auðvitað ekkert að spá í því sem ég var að gera sem betur fer.

Social vikunnar mætti nú alveg vera meira. Finn að þessi partur þarf ríkari áherslu. Við Emilía fórum að hitta Sunnevu vinkonu mína í Kópavoginum og fórum í KAP tíma (Kundalini Activation Process) hjá henni. Hingað til hefur það verið eina social í vikunni. Mér finnst þetta dáldið leiðinlegt því ég hafði háar hugmyndir um að fara á Improv eða leikhús eða tónleika og svo er það einhvern veginn ekki að gerast.

Jæja, þá er bara að bæta úr því.

Namaste.



No comments: