Vikan byrjaði á því að ég vaknaði á mánudagsmorguninn með luðru. Flensueinkenni. Treysti mér ekki einu í sund. Var því eiginlega alla vikuna að passa upp á mig. Að ég veiktist ekki eða fengi flensu. Það er búið að vera kvef í mér. Þetta er því búið að vera með endæmum róleg vika.
Það var skipulagsdagur og foreldraviðtöl hjá Guðrúnu Höllu svo ég var ekki mjög einmana en er alltaf á hálfgerðum bömmer. Mig vantar verkefni, hlutastarf. Vantar að koma mér út í lífið með einum eða öðrum hætti.
Art of yoga er búin að vera hálfgerð lífæð. Hef mætt þarna tvisvar í vikunni og þetta er svona minn félagsskapur núna. Var ekkert að auglýsa laust í nudd. Þetta er þannig vinna að maður þarf stundum frí frá henni. Var því bara með eitt nudd og gerði það vel. Kúnninn var allavegana hæstánægður.
Það var heljarinnar bömmer að klára bókina sem ég var að lesa; Ból eftir Steinunni Sigurðardóttur. Rosaleg harmsaga, grét þungum tárum yfir þessari blessuðu bók. Mjög vel skrifuð en jesús, mikið vona ég að næsta bók sé á léttari nótunum!
Verkefni vikunnar var að redda hótelgistingu á Tene en mér sýnist við nú bara verða á gamla góða hótelinu sem við höfum alltaf verið á. Það er eins og það sé ekki gert ráð fyrir 4 - 5 manna fjölskyldu á hótelum þarna suður frá. Er með samviskubit yfir verkefnunum sem hafa beðið á hakanum í verkefni vikunnar. Er þess vegna að spá í að drífa mig í Barnaloppuna og redda aukafötum á Styrmi. Finnst ég hálf ómöguleg amma ef ég er ekki með aukaföt ef eitthvað sullast til.
Hápunktur vikunnar var í gær þegar ég var með ánægðan kúnna og komst svo í yogað mitt. Bið ekki um meir.
Lágpunktur vikunnar var kannski á mánudagsmorguninn þegar ég vaknaði með luðruna. Samt frábært tækifæri til að hlúa að mér. Er samt bara farin að leiðast smá. Vantar eitthvað!
Social vikunnar er búið að vera Art of yoga. Þetta er lítil stöð og við erum alltaf sama fólkið sem mætum. Er nú reyndar að fara í sjósund á eftir með sjósundshópnum Valkyrjunum. Ein af okkur á afmæli þannig að það verður vonandi smá glens.
Ég er komin með hálfgerðan ósið. Er farin að fá mér rauðvín um helgar. Held að það sé af eintómum leiðindum. Upp á smá stemmningu kannski líka.
Namaste.
No comments:
Post a Comment