Þennan dag gerðum við fjölskyldan okkur glaðan dag og skelltum okkur í sund.
Það kom svo í ljós að það hafði svona fjórðungi Reykjavíkurbúa og Kópavogsbúa dottið það sama í hug.
Það var samt bara allt í lagi og við skemmtum okkur vel. Litla krúttið krúttaði næstum yfir sig. Frúin náði að synda og fá nudd í pottinum, kallinn hitti annan gröfukall eða eitthvern álíka í pottinum og gat skrafað við hann og krakkarnir komust í rennibrautirnar.
Það er ekkert allt of oft sem við gerum svona lagað núna þannig að þetta var fínt.
Góður dagur:)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
En gaman! Þessi færsla lét mig fatta hvert áramótaheitið mitt er. Takk!
Hey:) og hvað er það?
Post a Comment