Wednesday, March 16, 2016

Bali final days

ég hafði einn og hálfan dag eftir retreatið til að næra andann aðeins meir.

Tók taxa til að finna búð þar sem ég hafði keypt jógabol og ég fór þangað sem sagt aftur til að kaupa fleiri. Er búin að gera Svani skýr fyrirmæli um að þessa boli megi aðeins handþvo.
Anyhows. Ósk var búin að láta mig vita af yogastúdíói þarna í nágrenninu og ég var rosa spennt fyrir að fara í tíma. Það heitir Radiantly alive. Ég ætlaði að fara í Fligh high yoga þar sem maður hangir í svona dæmi. Svo einhvern veginn kom ég þarna allt of snemma og fór í tímann á undan sem hét (og heitir) Roll and release. Hann var æði. Mér fannst í alvörunni eins og ég væri komin til himna í þessu yogastúdíói. Komin heim. Mig langaði bara til að vera þarna.
Þessi yogatími var svo mikil upplifun fyrir mig. Hef aldrei áður prufað svona boltayoga þar sem maður rúllar boltunum undir iljunum fyrst og svo undir rassinn og bakið og MMmm mmmm MMMMmmmmmmmm.....

I have found my calling. Það er bara þannig.

Í næsta pósti segi ég frá Sandy sem las í tarrot spilin. Omg. Það var rosalegt.

No comments: