Monday, March 14, 2016

Bali Volume II

Síðan byrjaði námskeiðið.

Fyrsta morguninn mætti ég ásamt hinum í hugleiðslu kl. 06 um morguninn. Byrjuðum hugleiðsluna í myrkri umluktar náttúruhljóðunum og þegar við enduðum hana var farið að birta af degi. Algerlega magnað. Mynd nr. 1 og 2 eru teknar í "hugleiðslu- og yogasalnum" sem var í hótelgarðinum.

Sigrún Gyðja var með fyrirlesturinn þennan morgun minnir mig á Casa Luna sem er kaffihús þarna rétt hjá. Allt áhugavert og þarna fórum við upp á svið og kynntum okkur. Er rosalega stolt af að hafa meikað það svona yfir höfuð því það er nú ekki það auðveldasta ég geri. Kynnti til leiks örþreytta þriggja til fjögurra barna húsmóður sem er líka í fullu stjórnendastarfi. Fékk smá meðaumkun.

Fórum svo í Monkey park sem er við endann á Monkey Road þarna í Ubud. Það var upplifun ásamt öllu öðru. Enduðum svo daginn á að fara út að borða allar saman.

 


Á neðstu myndinni má sjá einn apa gefa öðrum apa svona "spa treatment." Þá er lýsnar plokkaðar út. Mmmmmmmm...

No comments: