Sunday, March 13, 2016

Bali volume I



Right.

Það var sem sagt sirka 30 klst eftir að ég lagði af stað að heiman að við hittum loksins Ósk. Ég sá hana um leið. Þvílíkt falleg. Mikið sem Bali fer vel með hana. Hún hefur bara yngst ef eitthvað er. Mér fannst dáldið eins og hún sæi okkur ekki og mér fannst það frekar undarlegt.... Það var ekki fyrr en nokkrum dögum síðar sem ég komst að því að hún er næstum blind. Hún er ein af þessum konum sem eru með gullfalleg ljósblá skær augu sem virðast sjá allt. Enda er hún "sjáandi" og skynjar allan fjandann eins og til dæmis orkuna manns. Hún virðist vita upp á hár hvort einhver sé hamingjusamur eða ekki, orkumikill eða orkulítill. Þetta skynjar hún allt. Hún hlustar líka mikið og les fólk eftir þessu öllu saman. Mögnuð manneskja.

Ferðin heim að hótelinu er eins og í draumi. Það er svo skrýtið að vera kominn í allt aðra heimsálfu, yfir hálfan hnöttinn þar sem er dagur þegar hér er nótt. Þrátt fyrir gífurlega þreytu spenntist ég öll upp þegar ég kom á hótelherbergið. Umhverfið úti í hótelgarðinum er allt svo framandi. Maður hefur ekki heyrt svona hljóð áður (í alls konar skordýrum og öðrum dýrum), ekki verið á svona stað áður þar sem orkan er svo mögnuð og ekki verið í svona hótelherbergi áður þar sem ekki eru beint gluggar heldur svona "skorið út" gluggar. Það er sem sagt ekki gler þannig að loftið fer beint inn. Það eru svona útskorin listaverk í gluggunum. Ótrúlega furðulegt. Maður svaf í svona himnasæng sem varð út af öllum flugunum og skordýrunum.. ég var ótrúlega ánægt með rúmið. Stór dýna sem er bara alveg nógu stór og meira til og líka mátulega mjúk. Ekkert vandamál þar.

Vandamálið var hins vegar að ég hrökk alltaf upp eftir svona sirka tveggja tíma svefn. Svona líka spennt eitthvað. Því miður leið mér vel þegar ég heyrði að önnur unglinganna (það vorum tvær ungar stelpur þarna á námskeiðinu, rétt skriðnar yfir tvítugt) var líka að lenda í þessu. Maður er í nýju umhverfi og maður er ekki vanur orkunni þarna. Það bara liggur eitthvað í henni og líka það sem er svo skrýtið þegar maður liggur svona upp í rúminu eru öll þessi náttúruhljóð sem eru svo alltumlykjandi. Þetta er í alvörunni eins og mjög hávær sinfónía af engisprettum, froskum, friskum (?), fuglum og ég eiginlega bara veit ekki hvaða dýrum. Algerlega magnað og maður liggur bara þarna frá sér numinn.
Af einhverjum ástæðum var ég með tvö rúm í herberginu... það var nú bara kósý. Held reyndar að ég hafi pantað það þannig fyrir misskilning. Oh well.. Það var í raun betra af því að ég var uppi á 3ju hæð og losnaði þess vegna að mestu við skordýrin. Einstaklingsherbergin voru á jarðhæðinni.. Ósk sagðist líka hafa skynjað þetta, að ég væri svona fóbíumanneskja, he he...

Allavegana, næsti dagur fór í að hitta hinar konurnar sem voru á námskeiðinu og kynnast nærumhverfinu en við bjuggum við J... Bisma götuna í Ubud. Yndisleg gata. Nuddstofur út um allt og veitingastaðir og hótel... Við fórum alltaf í morgunmat yfir götuna á sama hótel sem er sem sagt Honeymoon I en við bjuggum flestar í Honemoon II.. Daginn eftir að við komum var stuttur fundur þar sem við kynntum okkur og hittum Ósk og Sigrúnu, sem var líka með námskeiðið. Við fengum dásamlega Bali hliðartöskur í rosa flottum litum sem innihéldu námskeiðsgögnin, litlar bækur með dásamlegum skilaboðum framan á kápunni með auðum blaðsíðum til að skrifa í, blævæng og hárspennur. Dásamlegt. Síðast en ekki síst þá fengum við allar voucher í draumanuddið á nuddstofunni Rouge sem var líka sushistaður! Ég átti eftir að vera mikið þarna...:)

No comments: