Nú er svo komið fyrir örvæntingarfullu húsmóðurinni okkar að batteríin eru að klárast.
Kulnunin sem byrjaði árið 2013 þegar börnin urðu fjögur og okkar kona enn í 100% stjórnunarstarfi segir enn til sín.
Tankarnir eru löngu orðnir tómir og okkar kona lufsast áfram á einhverjum gufum í síðasta varatankinum.
Það eina sem hún þarf er að skólinn sé búinn, vinnan líka og svo helst þyrfti hún dágott frí frá heimilinu og öllum sem þar búa í svona mánuð.
Allavegana, það er annað count down byrjað. Í þetta skiptið er takmarkið frelsi og hvíld. Hvíld og frelsi.
Nuddvinnan er alls ekki vandamálið hér. Þvert á móti. Hún var takmarkið allan tímann og það sem heldur mér við efnið. Ég verð ekki þreytt á henni. Það er frekar allt annað sem sýgur úr mér orkuna.
Það eru 9 dagar í frelsið. Count downið byrjar á morgun. Helgin telst með því að allt þetta fjölskyldustúss er orkufrekt og krefjandi.
Gangi mér vel. You go girl.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Hæ elsku besta. Ég kem til landsins 30. júní. Væri gaman að taka smá náttúruhitting með dúllurnar.
Já, ætlaði að segja líka "hang in there" dúllan mín. Þú ert svo dugleg og flott!
Hæ, endilega Tinna mín. Til í það:)
Post a Comment