Á árunum 1987 - 1997 áttu foreldrar mínir sumarbústað með góðum og traustum vinahjónum í Borgarfirði.
Mér finnst eins og þau hafi kallað hann og umhverfið í kring Bláberjahæðir (það var mikið um bláber á svæðinu) en ég veit að nafnið var eftir bítlalagi og er nokkuð viss um að það hafi verið eftir þessu lagi.
Það er vissulega mikil kaldhæðni að efst á óskalistanum mínum í dag er sumarbústaður af því að ég kunni því miður ekki að meta þessi lífsins gæði á aldrinum sem ég var á þá.
Já, ég var til allrar óhamingju erfiður unglingur sem langaði ekki út úr borginni á síðustu árunum sem foreldrar mínir áttu bústaðinn.
Afsakið mig kæru foreldrar. Afsakið endalaust.
No comments:
Post a Comment