Wednesday, April 28, 2021

Örvænting..

Hrein og tær.

Ég hef aldrei átt 8 ára dóttur áður. Strákar eru auðveldir. En stelpur.. mon dieu!

Þetta er voða mikið drama. Nýr dagur, nýtt drama.

Í gær var ég fullkomlega miður mín. 

Erfiður morgun dótturlega séð sem endaði á því að hún fór grátandi í skólann í því sem mér fannst vera of þunn peysa. Var svo hrædd um að henni væri kalt. Nú er allt í einu komið sumar og úlpan var of mikið.

Ég var miður mín allt fram að fyrsta kúnna kl 10:30. Hringdi í skólann og allt. 

Svo leið mér illa yfir þessu allan daginn. Yfir því hvað henni leið illa um morguninn. Hún nær mér tilfinningalega séð.

Var ég búin að segja ykkur að ég er empath? Það sem gerðist rétt í þessu er gott dæmi. Ég sit á uppáhalds kaffihúsinu mínu og allt er æði þangað til ákveðin orka kemur inn. Kona. Fræg kona. Finn mjög erfiða orku og þarf að fara. Á leiðinni heim fæ ég sting í hálsinn og líður skringilega alla leiðina heim. Hef lent í þessu áður. Grunar að frægð fylgi stundum bölvun. 

Að allt öðru: Er að glíma við dáldið. Mig vantar verkefni - eitthvað fyrir hausinn á mér að glíma við - ef til vill eitthvað að semja eða skrifa. Væri reyndar bara næs að hitta manneskjur líka. 

Allavegana, aftur að dóttur minni, ég/við erum ekki búin að finna neitt námskeið fyrir hana í sumar svo ég sé fram á heilt sumar þar sem hún hefur ekkert að gera. Hún vill sko bara fara á námskeið með vinkonunum og ég er búin að bögga foreldra þeirra nóg með þetta í bili. Verandi móðir veit ég samt að það er fátt erfiðara en barn sem leiðist um sumar. Tala nú ekki um stelpuna mína. Leiðinn verður svo átakanlegur.

Ég bið því alla góða vætti um að stuðla að því og hjálpa mér við að finna eitthvað fyrir dóttur mína að gera í sumar.

Ég elska þetta barn svo mikið. Hún er fiskur. Það sem ég hef lesið og lært um fiska stjörnumerkið passar við hana.

Jæja. Trúnó out.

No comments: