Thursday, July 8, 2021

Bitur

Flestar konur vilja vera séðar. Fá smá athygli og vita að þær séu ennþá aðlaðandi. 

Hef aldrei fengið typpamynd senda. Verð stundum bitur þegar ég hugsa um það. Held að það sé út af því að bestu vinkonur mínar hafa fengið, sko ekki bara tugi, heldur hundruði typpamynda. Var að hugsa um þetta í gærkvöldi og fattaði svo að það er út af tinder.

Ég hef náttúrulega aldrei verið á tinder.

Síðastu vikur hef ég verið að fá ödd og skilaboð frá ókunnugum karlmönnum um og yfir fimmtugt. Það er þó allavega eitthvað.

Hlýtur að vera eitthvað umönnunar vibe sem ég gef frá mér.

Allavega, við erum að fara út úr bænum á eftir og mér líður eins og ég sé að fara á eitthvert sprengjusvæði. Skoða einhver stríðsátök. En nei, þetta er bara tjaldsvæðið á Hellu. 

Er komin af fólki sem er sumarbústaðatýpur. Rætur mínar eru sterkar svo að ég er líka sumarbústaðatýpa. Þrái friðsælan sumarbústað með mikilli náttúru. Má gjarnan vera afskektur og lóðin má gjarnan vera merkt einkalóð. Ókunnugum meinaður aðgangur. Ég er svo sannarlega afsprengi foreldra minna. 

Hlakka til næstu viku. Það er full vinnuvika með fastafyrirtækjum seinnipart vikunnar. 

Þarf bara fyrst að lifa þessa helgi af. 



No comments: