Er að binge horfa á The bold type.
Þetta eru þættir um þrjár ungar konur sem vinna á tímaritinu Scarlet. Þetta eru þær Jane Sloan (a writer), Sutton Brady (stylist) og Kat Edison (sérfræðingur í samfélagsmiðlum og aktivisti.)
Elska þessa þætti og tók upp á því að horfa á alla þættina frá byrjun. Ætli ég sé ekki í fortíðarþrá eða þið vitið nostalgíukasti yfir því að vera 26 eða 27 ára eins og þær eru og léttúðin sem fylgir því. Hlátur ungrar manneskju sem er ennþá frjáls frá barnauppeldi og hjónabandi er engum hlátri líkur. Ætli ég sakni þess ekki líka að hanga með vinkonum og vera ekki skrýtin.
Þið vitið áður en maður varð eins og 73 ára introvert.
Ætli ég sakni ekki líka þess að eiga svona góðar vinkonur. Þær eru í rauninni fjölskylda og ef eitthvað bjátar á hjá einhverri þeirra sem gerist reyndar í hverjum þætti eru hinar strax komnar til að vera til staðar.
Í þættinum í gær ákváðu stelpurnar að prufa að microdoza sem er að taka inn sveppi í litlu magni. Það er orðið frekar mainstream. Allavega þær tóku óvart of stóran skammt og fóru í vinnuna á sveppatrippi. Ég grét úr hlátri. Það var æði.
Elska líka þessa þætti af því að þeir eru svo mikill innblástur. Þær eru iðulega að berjast fyrir því að gera heiminn að betri stað og stuðla að mannréttindum. Svo eru þetta svo frábærir karektarar og þær ná svo vel saman.
I love these girls. Svo miklar fyrirmyndir.
No comments:
Post a Comment